Skilmálar

Doc Media slf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk eða 11% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. 

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Doc Media ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Doc Media til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Trúnaður (öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.